Alhliða þjónusta og smurning fyrir atvinnutæki – og tilboð í alla almenna þjónustu sem og flóknari viðgerðir.
Á verkstæði Vélaborgar starfar góður hópur viðgerðarmanna með breiða þekkingu á öllum verkum sem viðkoma viðgerðum á vinnuvélum, atvinnubifreiðum og landbúnaðartækjum.
Verkstæðið er búið fullkomnum tækjum til bilanagreiningar og viðgerða á öllum þeim vörumerkjum sem Vélaborg er með umboð fyrir. Verkstæðið sinnir einnig öllum þjónustu- og ábyrgðarviðgerðum á þeim vörumerkjum sem VB Landbúnaður er umboðsaðili fyrir (að undanskildum Lely mjaltaþjónum).
Verkstæðið hefur til ráðstöfunar sérbúnar þjónustubifreiðar til þjónustu á tækjum sem eru erfið í flutningi eða eru staðsett langt frá okkur.
Lýstu tækinu og verkinu. Því betri upplýsingar, því auðveldara er að undirbúa komu tækisins á verkstæðið.
Fyrir varahluti, sjá varahlutapöntun.