Sundaborg 1, 104 ReykjavíkVerslun: …Verkstæði: …Sími 414 8600
Forsíða/Um Vélaborg

Um Vélaborg

Þjónusta og innflutningur vinnuvéla og tækjabúnaðar fyrir hina ýmsu geira atvinnulífsins sem og einstaklinga – síðan í janúar 2009.

Varahlutaþjónusta Vélaborgar er ekki einskorðuð við umboð fyrirtækisins heldur leggjum við metnað okkar í að aðstoða viðskiptavini okkar við öflun varahluta og rekstrarvara á mjög breiðu sviði.

Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum hópi samstarfsaðila utan landsteinanna, hvort sem er við miðlun varahluta eða innflutning vinnuvéla og búnaðar.

Starfsfólk Vélaborgar er samhentur hópur með áralanga reynslu í verslun með vélbúnað og þjónustu við hann, reynslu sem nýtist vel í þágu fyrirtækisins og viðskiptavina þess.

Velkomin í Vélaborg.

  1. 2009
    Vélaborg hefur starfsemi

    Vélaborg hóf starfsemi sína í janúar 2009.

  2. 2020
    Úr Járnhálsi 2 í Krókháls 5f

    Flutt í næsta hús, aftur í sama húsnæði og fyrir flutninginn á Járnhálsinn.

  3. 2022
    Á Verk og vit

    Bás með áherslu á árekstrarvarnir og Assa Abloy iðnaðarhurðir, vörubryggjur, hleðsluskýli og veðurhlífar.

  4. 2025
    Allt undir einu þaki í Sundaborg 1

    Verslun, skrifstofa og verkstæði á sama stað.

Starfsfólk

Umhverfis- og öryggisstefna

Það er stefna Vélaborgar að öryggi starfsmanna sé forgangsmál. Sama gildir um aðra sem koma að starfsemi félagsins, þ.e. starfsmenn verktaka, gesti eða aðra.

Einnig er það stefna félagsins að starfsemin valdi ekki skaða á umhverfinu.

Starfsmenn skulu ávallt starfa í samræmi við viðeigandi vinnuferla, lög og reglur um öryggi og verndun umhverfisins. Starfsmenn skulu vernda sjálfa sig, samstarfsmenn sína, farþega, vörur sem félaginu er trúað fyrir, búnað og umhverfi fyrir skaða.

Meginmarkmið

  • Að vinnuaðstaða starfsmanna sé örugg og heilsusamleg
  • Að reksturinn sé í samræmi við landslög, alþjóðareglur og samþykktir og aðra viðeigandi og viðurkennda staðla og viðmiðanir

Leiðin að markmiðunum

  1. Að ákvarða og æfa viðbrögð við skilgreindri hættu
  2. Stuðla að öruggum vinnuaðferðum og vinnuumhverfi
  3. Viðhalda öryggisvitund, sjálfsaga og ábyrgðartilfinningu starfsmanna með aðstoð skipulagðs og skjalfests þjálfunarkerfis
  4. Auka hæfni starfsmanna í öryggismálum með fræðslu og þjálfun
  5. Halda starfsmönnum upplýstum um áhættuþætti í rekstri sem snerta þá sjálfa, samstarfsmenn og/eða umhverfið
  6. Tryggja samræmi milli skráðra vinnuferla og raunverulegra vinnubragða hverju sinni með innri athugunum og eftirliti
  7. Fylgjast með lögum og reglum, stöðlum og viðurkenndum viðmiðunum sem eiga við starfsemina og tryggja að unnið sé í samræmi við það

Fréttir

Vélaborg flytur í Sundaborg

Vélaborg flytur alla starfsemi sína í Sundaborg 1, 104 Reykjavík.

Erum því með verslun, skrifstofu og verkstæði á sama stað.

Við hlökkum til að hitta viðskiptavini okkar á nýjum stað.

Verk og vit 2022

Vélaborg er með bás á Verk og vit 2022.

Væri gaman að sjá sem flesta okkar viðskiptavina þar þótt aðaláherslan sé á árekstrarvarnir og Assa Abloy iðnaðarhurðir, vörubryggjur, hleðsluskýli og veðurhlífar.

Gleðileg jól

Við óskum þér og þínum gleðilegrar hátíðar og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

Jólakveðjur, starfsfólk Vélaborgar

Vélaborg flytur … en ekki langt

Vélaborg flytur heimilisfang sitt frá Járnhálsi 2 að Krókhálsi 5f. Í rauninni erum við bara að flytja okkur í næsta hús innar í Járnhálsinum hinum megin við malarplanið, þannig að við erum enn í sömu götu þótt heimilisfangið gefi annað til kynna.

Fyrir þá sem það muna erum við komin aftur í sama húsnæði og við vorum í áður en við fluttum á Járnhálsinn.