Varahlutir og rekstrarvörur, svo sem síur, hjólbarðar og ljós, í flestar tegundir vinnuvéla og lyftara – ekki bara fyrir okkar eigin umboð.
Varahlutaþjónusta skipar stóran þátt í starfsemi Vélaborgar enda skiptir það miklu máli að viðskiptavinir fyrirtækisins fái skjóta og góða þjónustu þegar kemur að því að panta varahluti.
Hafðu fast skráningarnúmer eða framleiðslunúmer (serial no.) og árgerð vélarinnar á reiðum höndum.
Hægt er að skoða varahlutalista á netinu hjá flestum framleiðendum og mörgum vélum fylgir varahlutalisti með vörunúmerum.
Því meiri upplýsingar, því minni líkur á röngum hlut og því fljótari erum við að svara með afgreiðslutíma og verð.
Allir okkar stærstu birgjar eru með neyðarkerfi sem eiga í flestum tilfellum að tryggja okkur vöruna innan 24–48 tíma frá pöntun, sé hún ekki til hjá okkur.
Byrjaðu á upplýsingunum af framleiðsluplötu vélarinnar og skráðu svo hlutina sem vantar.
Auk varahluta fyrir eigin umboð.